Tuesday, May 8, 2007

Þetta finnst mér sniðugt

Úr Fréttablaðinu í dag:
"Tveir búðarhnuplarar fengu óvenjulegan dóm á dögunum fyrir að stela úr búðinni Wal-Mart í bænum Attalla í Alabama. Þeir voru dæmdir til að standa fyrir utan búðina í fjórar klukkustundir tvo laugardaga í röð með spjöld þar sem á stóð: „Ég er þjófur, ég stal úr Wal-Mart", eða sitja að öðrum kosti í fangelsi í 60 daga."

Ég sé þá alveg fyrir mér...

2 comments:

Sólveig said...

phahaha... Hvað með ,,the land of the free..." í þjóðsöngnum þeirra??? Þeir eru nú reyndar alveg margbúinir að brjóta þau stóru markmið sem þeir lögðu upp með þegar sá texti var saminn. Merkilegt að Bush hafi ekki látið breyta textanum við þjóðsönginn svona smátt og smátt síðustu árin.

Annars er ég alveg að koxa á þessum próflestri svona á endasprettinum. Hef aldrei verið mikill langhlaupari í mér sko :)

Anonymous said...

bara sólarhingur og 1 klst eftir. Við þraukum! ótrúlegt alveg, ótrúlegt!
ástan