Friday, May 4, 2007

Njálgur...

... kominn í Berglind. Ástæðan: Of mikið lesið af kvensjúkdómum í dag.
Get ekki lengur setið kyrr. Vildi að þetta próf væri á morgun.
En... eftir viku verð ég búin! Eftir viku verð ég í ofsa fínum kvöldmat með ofsa mikið af fínu víni á leiðinni á djammið, að fara til Tælands daginn eftir og eftir að pakka. :) Hið ljúfa líf.

Annars hefur það ekki góð áhrif á mann að skoða of mikið af myndum af krabbameinum hið neðra. Ég var búin að setja hér link á þannig myndir en ég tók hann út af góðmennsku einni saman. Ef fólk þarf ekki að læra að greina þannig þá á það aldrei að þurfa að sjá þannig. Horfið frekar á Hostel e. Eli Roth.

2 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir hugulsemina. Ég get ekki einu sinni horft á Hostel ;-)

Anonymous said...

Oh men hvad thetta hljomar vel ;-) t.e. maturinn og vínið hehe. Finnst ágætt thú tókst niður linkinn B-)
xxx Magsie