Tuesday, June 19, 2007

Af jeppagellu á Þingvöllum

Á sautjándanum fór ég í örlitla jeppaferð með honum föður mínum. Nú kann ég á diff lock, stabilizer, front lock etc etc etc auk þess sem ég kann að gera við dekk alveg sjálf. Mér finnst ég ógurleg töffarakona.
Í gær fórum svo ég og hin ferfætta systir mín í Skógarkotsheimsókn á Þingvelli. Þar var nú gott að vera, afgangar úr útskriftarveislu, pottur í sólinni og grill um kvöldið í góðra vina hópi. Hvað er betra en það?

2 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ
Var að rekast á þessa síðu óvart, vissi ekki að þú værir að blogga!!
Ætlaði bara að óska þér til hamingju með útskriftina. Ég var of sein að láta vita að ég kæmist ekki, var með gesti og var alveg utan við mig :S
Hef hér með bætt þér inn í blogg-hringinn minn ;)
Sigrún þýska

Berglind said...

gaman að vera hluti af blogg rúnti :)